Bóka bandið
Gigg framundan:
Fréttir: Beyonce Tribute - sun 31. oktUndanfarna mánuði hefur hljómsveitin Bermuda verið í stífum æfingum fyrir Beyonce Knowles & Destiny´s Child tribute tónleika.Hljómsveitin mun flytja alla helstu smelli og þar má meðal annars nefna lögin Single Ladies, Crazy in love og Say my name. Bermuda hefur fengið til liðs við sig vel valda og hæfileikaríka tónlistarmenn til að gera atburðinn sem veglegastan. Í röddum verða: Stefanía Svavarsdóttir Ingunn Hlín Friðriksdóttir Ína Valgerður Pétursdóttir Á slagverk leikur Brynjólfur Snorrason. Meðlimir Bermuda eru Íris Hólm Gunz A La Tomma Ingvar Alfreðs Steini Guðjóns Pétur Kolbeinsson Daði Georgsson Styrktaraðilar kvöldsins eru: Xform.is Karl K.Karlsson MIÐASALA - http://midi.is/tonleikar/1/6225 og við innganginn.Myndböndin á youtube - fim 24. júnNýtt vídó var tekið upp í stúdíóinu okkar við lagið "Stay Awake" ..hvar Íris fór á kostum og kynjum við upptökurnar. Vídóið verður trúlega tilbúið í næstu viku og verður sett á jútjúb um leið með samsvarandi fréttatilkynningum. Frumsýning 11. okt - sun 27. sepNánar síðar!Bermuda spilar á risastórdansleik - sun 16. ágúSvakalegt ball þann 5. sept! Fjölmennum... allavegana þú!Bermuda semur og flytur Neistaflugslagið - fim 30. júlBermuda - Neisti Lag: Ómar Örn Arnarson Texti: Íris Hólm Hægt er að hlusta og ná í lagið hérKomdu með á Neistaflug! - sun 26. júlJæja kæru landar! Nú er tími til kominn að skella sér austur um verslunarmannahelgina og ganga til liðs við Bermuda í eintómri gleði og BJÁLÆI! Neistaflug er málið í ár og munum við stíga þar á stokk á laugardagskvöldinu í Egilsbúð! Ekki má gleyma útiskemmtuninni, en þar munum við hita upp fyrir kvöldið! SJÁUMST HRESS OG KÁT!Söngkeppni Framhaldsskólanna - mán 6. aprStærsta ball sem haldið er á Íslandi árlega, er ballið sem haldið er að lokinni Söngkeppni Framhaldsskólanna. Við munum spila á þessu STÆRSTA BALLI ÁRSINS og leika við hvern okkar fingur eftir að hafa rúllað upp undirspilinu í keppninni sjálfri á undan! Söngkeppnin verður sýnd í beinni útsendingu á Stöð 2 í opinni dagskrá, þannig að enginn ætti að þurfa að láta þetta framhjá sér fara.Við erum þessa dagana að taka upp lögin með keppendunum, og verður hægt að hlusta á þau á netinu bráðlega. Ásamt þessu, erum við að vinna í eigin efni, og hugum að smáskífuútgáfu í Maí. Stúdíóið okkar, og æfingaraðstaða, Default Studios, hefur hlotið mikið lof keppenda sem komið hafa, enda mikil blessun að hafa svona góða aðstöðu til að hella úr skálum tónlistarinnar sem býr í okkur.Gleðilega hátíð - þri 23. desVið minnum á nýjasta lagið okkar "I'm not her". Hægt er að hlusta á lagið hér á síðunni okkar og á youtube.com. Einnig er hægt að kaupa lagið í fullum gæðum á amazon.com og fljótlega á öðrum tónlistarsíðum. Hljómsveitin óskar ykkur öllum gleðilegrar hátíðar og vonar að þið hafið það sem allra best um jól og áramót. Sjáumst svo eiturhress á balli á nýju ári! Kveðja: Íris Hólm, Gunni, Ómar, Ingvar, Pétur og Daði.Nýtt lag: I'm not her - mið 17. desHljómsveitin hefur nú gefið út nýtt lag sem er það fyrsta með nýrri söngkonu sveitarinnar, Írisi Hólm. Lagið heitir "I'm not her" og er lagið eftir Gunna trommara. Íris á textann við lagið. Endilega hlustið á lagið hér á síðunni undir "Tónlistin".Takk fyrir okkur Egilsstaðir - þri 11. nóvÞað var hrikalega sveitt og skemmtileg stemmning í Valaskjálf á Egilsstöðum síðastliðið laugardagskvöld, enda hljómsveitin að spila ;) Við þökkum þeim fjölmörgu sem komu og skemmtu sér á ballinu með okkur. Sjáumst sem fyrst aftur.
Ef markmiðið er að halda Dansleik, Árshátíð, Þorrablót eða jafnvel tónleika, þá er hljómsveitin BERMUDA málið. Lagavalið er mjög fjölbreytt og á efnisskránni eru lög allt frá Stevie Wonder yfir í Diskó og alla leið til Beyoncé Knowles og þess sem heitast er hverju sinni.
BERMUDA eru: Íris Hólm söngur Gunz a La Tomma trommur Ingvar Alfreðsson hljómborð Pétur Kolbeinsson bassi Steini Guðjóns gítar
BERMUDA var stofnuð á haustmánuðum 2004 en allir meðlimir sveitarinnar hafa þó langa reynslu af hverskonar spilamennsku. Markmið sveitarinnar er að fullnægja þörfum markaðarins hverju sinni og stefnir hún að því að gefa út eigið efni samhliða almennri spilamennsku.
FRAMUNDAN
FRÉTTIR
BERMUDA var stofnuð á haustmánuðum 2004 en allir meðlimir sveitarinnar hafa þó langa reynslu af hverskonar spilamennsku.
BERMUDA ætlar að vinna eigið efni samhliða spilamennsku útum allt. Afraksturinn gæti orðið eitt stykki breiðskífa...
Lagavalið er mjög fjölbreytt og á efnisskránni eru lög allt frá Stevie Wonder yfir í Diskó og alla leið til Beyoncé Knowles í bland við eigið efni.
UM HLJÓMSVEITINA
Gunni er trommari hljómsveitarinnar. Hann hefur verið í mörgum hljómsveitum í gegnum tíðina. S.s.: Reggie On Ice, Sirkús Babalú, Nova, Leynifjelaginu, 737, Sófunum, South River Band og svo mætti lengi telja.
Gunni hefur alla tíð haft dálæti á trommum og trommuleik og er greinilegt að bakvið settið, á hann heima.
Gunni
Ingvar er hljómborðsleikari hljómsveitarinnar. Hann kemur frá Ísafirði og hefur verið þar í bandi með Helga Idol-stjörnu. Ingvar er, þótt ungur að árum sé, reynslubolti í tónlistarbransanum og þótti snemma á ferlinum undrabarn. Ekki láta útlitið blekkja ykkur, hann er fínn gaur inn við beinið.
Ingvar nemur hljómbyrði í tónlistaskóla FÍH og kemur trúlega til með að dúxa þar á mettíma.
Ingvar
Ómar er gítarleikari hljómsveitarinnar. Hann slær gígjuna af svo mikilli sannfæringu að stærðfræðingar eiga enga von um að afsanna gítarsnilli hans. Ómar er maðurinn sem selur þér sellóstrengi í Tónastöðinni og lætur þig svo svitna á dansgólfinu á Melapöbbnum eftir Sinfó giggið.
Ómar ætlar í framtíðinni, samhliða gítarleik, að flytja út áður innfluttar vörur. Hann segir að í þeim bransa sé "ógurleg gróðavon".
Ómar
Íris er söngkona hljómsveitarinnar. Hver kannast ekki við þessa viðkunnanlegu snót úr X-Factor, eftir að hún lenti í 3ja sæti í dúetnum Gís veturinn 2006-2007. Það verður ekki hjá því komist að taka eftir þessari heillandi söngdívu, því hún kann sko sannanlega að syngja! Íris á MySpace síðu og Facebook síðu. Mottó: Strákar. Þið eruð ekki svona fyndnir!
Íris Hólm
Pétur er bassaleikari hljómsveitarinnar. Hver kannast ekki við þennan viðkunnalega fýr að norðan, eftir að hann komst "slatta langt" á Andrésar Andarleikunum veturinn 1963-1964. Leiðir hann hrynsveitina með svæsnu bassabíti og yfirborðskenndum módelhroka, og sveiflar dönsurum á Öldum hrynjandans á meðan hann lætur ljós sitt skína á senunni. Mottó: Pétur ætlar að setja á markað öryggistilfinningu í samstarfi við fyrirtækið sem hann vinnur hjá; nefnilega Securitas. [Þess má geta að Pétur fann upp dyrabjölluhnappinn á dögunum].
Pétur á Öldu.
Pétur
SKRÁR
Veldu hér að ofan það sem þú vilt skoða.
GESTABÓK
Þú þarft að vera með kveikt á javascript til að sjá þessa síðu eins og hún á að vera. Einnig þarftu að vera með Flash plugin.
Við mælum með Firefox vafranum:
Flash plugin-ið ætti að downloadast sjálfkrafa eftir að þú ert búin(n) að kveikja á javascript (eða ná í vafra (firefox/internet explorer) sem styður javascript). Firefoxinn lætur þig vita að plugin-ið vantar, og leiðir þig áfram í uppsetningu þess.